Jæja-147. kafli
“But the agreed price — 30 dollars per megawatt-hour — was far from ideal. In Iceland, the company pays half that.”
Þessi spöku orð má lesa á heimasíðu Alcoa þar sem fyrirtækið hefur nýlokið samningum um orkukaup og einhver brasilískur svíðingur náði haustaki á þeim við samningaborðið og neyddi þá til að borga 30 dollara á megawattstund.
Þá er nú betra að eiga viðskipti við hina leiðitömu Íslendinga sem fást á hálfvirði samanborið við Brassana.
15 dollarar á megawattstund er semsagt verðið sem Alcoa borgar fyrir orkuna frá Kárahnjúkum.
15 dollarar eru rétt rúmlega þúsundkall.
Ojæja.
Ef við breytum megawattstundum í kílówattstundir þá fáum við út að verðið er um það bil ein króna fyrir hverja kílówattstund. Af því má ráða hve harðvítugir samningamenn íslenska ríkisins eða öllu heldur Landsvirkjunar eru fyrir hönd okkar.
Íslensk heimili og reyndar langflestir notendur á rafmagni borga 8 krónur fyrir hverja kílówattstund eða átta sinnum meira en Alcoa.
Ég ræddi þess mál við mann hjá Orkuveitu Reykjavíkur sem sagði mér að það tíðkuðust ekki miklir afslættir fyrir stórnotendur og þegar ég spurði hvernig honum litist á að ég borgaði eina krónu fyrir kílówattstund þá hló hann svo mikið að hlé varð á samtali okkar um stund.
Svo sagði hann að þó ég keypti allt rafmagn sem Orkuveitan framleiðir þá fengi ég það ekki á krónu.
Nó sör.
Ég hafði líka samband við Landsvirkjun því mér datt í hug að þeir vildu segja eitthvað um málið. Ég fékk þau skilaboð frá upplýsingafulltrúanum að orkuverð til Alcoa væri viðskiptaleyndarmál og trúnaðarmál og Landsvirkjun myndi ekkert tjá sig um þetta frábæra verð - eina krónu á kílówattstundina.
Ef þetta er leyndarmál þá gleymdist að láta Alcoa vita af því.
Það sem er skrifað í tíðindaskyni á heimasíðu stærsta álfyrirtækis heims getur varla flokkast undir leyndarmál. Nema maður taki strútinn á málið og stingi hausnum djúpt í sand þar sem ekkert netsamband fæst.
Ef þetta er hinsvegar eðlilegt hlutfall milli verðs til stórnotenda og heimilistaxta- ef þetta er bara einfaldlega eðlilegt verð - þá ætti það eiginlega ekki að vera neitt leyndarmál.
Má ég minna á að Landsvirkjun er fyrirtæki í opinberri eigu- semsagt minni eigu og þinni- og þótt þeir vilji segja okkur að halda kjafti þá hafa þeir ekki nema mjög takmarkaðan rétt til þess.
Mér finnst eðlilegt að Landsvirkjun sé ámóta opinská og Alcoa og segi okkur hið gjörasta af ósmurðum eða lítt smurðum samskiptum sínum við álrisann.
Við bíðum og hlustum.
Posted: júní 7th, 2006 under Óflokkað.
Comments: 3
Athugasemdir
Athugasemd from Inga Sigrún
Time: júlí 6, 2006, 8:23 pm
Var að nota upplýsingar þínar til að skoða smá hugleiðingu, skrifaði um að hér.
http://www.ingasigrun.is/
Athugasemd from hanna
Time: október 5, 2006, 2:35 pm
Palli. Hvað svo ?
Athugasemd from Jamirkuai
Time: maí 2, 2007, 12:29 am
Great site. Verry usefull information.
Skrifaðu athugasemd